Fréttasafn
10. apríl 2026
Leiðbeiningar í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 2026
Nánar
Í tilefni sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara 16. maí nk. hafa nokkrar stofnanir tekið höndum saman og gefið út sameiginlegar leiðbeiningar fyrir stjórnmálasamtök, framboð og almenning.
27. mars 2026
3G lokar um land allt
Nánar
Fjarskiptastofa, Neyðarlínan og fjarskiptafyrirtæki landsins vekja athygli á að lokun 3G-farsímakerfa stendur yfir hjá öllum fjarskiptafyrirtækjunum. Lokanir hefjast á höfuðborgarsvæðinu 8. apríl næstkomandi. Í kjölfarið verður öllum 3G-kerfum lokað á landsbyggðinni í maí.
25. mars 2026
Fjarskiptastofa setur í loftið NIS2 könnun fyrir fyrirtæki og stofnanir
Nánar
Netöryggissvið Fjarskiptastofu hefur sett í loftið nýja könnun sem ætlað er að aðstoða fyrirtæki og stofnanir við að meta hvort líklegt sé að þau falli undir gildissvið netöryggistilskipunar Evrópusambandsins (NIS2).
12. febrúar 2026
Niðurstaða samráðs Fjarskiptastofu um tíðnir og nýsköpun
Nánar
Fjarskiptastofa birtir hér niðurstöðu samráðs sem efnt var til þann 27. maí 2025 í þeim tilgangi að opna á umræðu um tækifæri og nýsköpun í þráðlausum fjarskiptum framtíðarinnar og jafnframt til að kanna áhuga og væntingar um ráðstöfun tiltekinna tíðnisviða.
28. janúar 2026
Traust fjarskipti eru þjóðaröryggismál
Nánar
Traust og öruggt fjarskiptakerfi er forsenda þess að samfélagið geti starfað eðlilega, ekki síst þegar á reynir. Í nýlegri grein Unnar Kristínar Sveinbjarnardóttur, sviðstjóra netöryggissviðs, á Vísi er fjallað um fjarskipti sem lykilinnviði og mikilvægi þeirra fyrir þjóðaröryggi.
22. janúar 2026
Metfjöldi umsókna um netöryggisstyrki Eyvarar
Nánar
Mikill áhugi var á netöryggisstyrkjum Eyvarar í nýafstaðinni úthlutun, en alls bárust 48 umsóknir um styrki. Þetta er mesti fjöldi umsókna sem borist hefur í úthlutun Eyvarar til þessa og endurspeglar vaxandi áhuga og aukinn kraft í netöryggismálum hér á landi.
13. janúar 2026
Úrlausn á kvörtun um brot Mílu á kvöðum
Nánar
Ljósleiðarinn ehf. sendi Fjarskiptastofu erindi vegna meintra brota Mílu hf. á kvöðum sem koma fram í ákvörðunum Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 8/2014, 21/2015 og 5/2024.
19. desember 2025
Lokun 2G og 3G – Getur mögulega skert aðgengi að neyðarnúmerinu 112
Nánar
Undanfarið hefur staðið yfir útfösun 2G og 3G farsímakerfa hér á landi.