Fréttasafn
2. júní 2026
Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum - Tölfræðiskýrsla Fjarskiptastofu fyrir árið 2025 komin út
Nánar
Tvisvar á ári safnar Fjarskiptastofa upplýsingum frá skráðum fjarskiptafyrirtækjum hér á landi um ýmsar stærðir í rekstri og þjónustu á sviði fjarskipta. Upp úr þeim tölum vinnur stofnunin tölfræðiskýrslur sem sýna upplýsingar um helstu stærðir og fyrirtæki á íslenskum fjarskiptamarkaði. Markmiðið er að bæta upplýsingagjöf og auka gagnsæi á þessum markaði og eru skýrslur stofnunarinnar í samræmi við þær skýrslur sem systurstofnanir Fjarskiptastofu í nágrannalöndum okkar gefa út. Skýrslan sem nú er birt sýnir tölfræði um fjarskiptamarkaðinn fyrir árið 2025. Hún inniheldur tölulegar upplýsingar um helstu þætti á markaðnum og samanburð við stöðuna á árunum á undan. Skýrslunni er skipt upp eftir fastanetinu, farsímanetinu, föstum internettengingum, pakkaáskriftir og að síðustu veltu og fjárfestingu á fjarskiptamarkaði.
21. maí 2026
Samráð um innleiðingu á ákvörðun ECC/DEC/(22)02 - Afnám heimildar til AIS-merkinga á netabaujum
Nánar
20. maí 2026
Fjarskiptastofa sendir ESA drög að ákvörðun um endurskoðun kvaða á markaði fyrir staðaraðgang
Nánar
6. maí 2026
Fjarskiptastofa kallar eftir samráði um gjaldskrá Mílu fyrir aðgang að ljósbylgjum á heildsölumarkaði fyrir stofnlínuhluta leigulína
Nánar
Með ákvörðun Fjarskiptastofu nr. 1/2024 samþykkti stofnunin kostnaðargreiningu Mílu hf. (Míla) fyrir ljósbylgjur sem var ný þjónusta á vegum félagsins. Í þeirri ákvörðun kom fram að þar sem kostnaðargreiningin byggði á áætlun um eftirspurn sem hafði töluverð áhrif á niðurstöðuna, taldi Fjarskiptastofa rétt að kostnaðargreiningin væri endurskoðuð þegar raunveruleg eftirspurn lægi fyrir.
10. apríl 2026
Leiðbeiningar í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 2026
Nánar
Í tilefni sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara 16. maí nk. hafa nokkrar stofnanir tekið höndum saman og gefið út sameiginlegar leiðbeiningar fyrir stjórnmálasamtök, framboð og almenning.
27. mars 2026
3G lokar um land allt
Nánar
Fjarskiptastofa, Neyðarlínan og fjarskiptafyrirtæki landsins vekja athygli á að lokun 3G-farsímakerfa stendur yfir hjá öllum fjarskiptafyrirtækjunum. Lokanir hefjast á höfuðborgarsvæðinu 8. apríl næstkomandi. Í kjölfarið verður öllum 3G-kerfum lokað á landsbyggðinni í maí.
25. mars 2026
Fjarskiptastofa setur í loftið NIS2 könnun fyrir fyrirtæki og stofnanir
Nánar
Netöryggissvið Fjarskiptastofu hefur sett í loftið nýja könnun sem ætlað er að aðstoða fyrirtæki og stofnanir við að meta hvort líklegt sé að þau falli undir gildissvið netöryggistilskipunar Evrópusambandsins (NIS2).
12. febrúar 2026
Niðurstaða samráðs Fjarskiptastofu um tíðnir og nýsköpun
Nánar
Fjarskiptastofa birtir hér niðurstöðu samráðs sem efnt var til þann 27. maí 2025 í þeim tilgangi að opna á umræðu um tækifæri og nýsköpun í þráðlausum fjarskiptum framtíðarinnar og jafnframt til að kanna áhuga og væntingar um ráðstöfun tiltekinna tíðnisviða.