Fréttasafn
18. desember 2025
Fjarskiptastofa framlengir gildistíma á tíðniheimild Símans á 900 MHz
Nánar
Í dag tók Fjarskiptastofa (FST) ákvörðun um að samþykkja beiðni Símans hf. (Síminn) að fá framlengingu á viðbótartíðniheimild félagsins á 900 MHz tíðnisviðinu til 30. júní 2026 vegna áframhaldandi útfösunar á eldri farnetskerfum fyrir 2G og 3G þjónustur.
17. desember 2025
Könnun innviðaráðuneytis um einföldun regluverks og þjónustu hins opinbera
Nánar
Svarfrestur hefur vreið framlengdur til 19. janúar 2026.
15. desember 2025
Fjarskiptastofa kallar eftir samráði um endurskoðun á útnefningu fjarskiptafyrirtækja með umtalsverðan markaðsstyrk á tilteknum landfræðilegum mörkuðum á heildsölumarkaði fyrir staðaraðgang með fasttengingu
Nánar
Í maí 2024 gaf Fjarskiptastofa (FST) út ákvörðun nr. 5/2024 um útnefningu fyrirtækja með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á heildsölumörkuðum fyrir staðaraðgang með fasttengingu og miðlægan aðgang með fasttengingu fyrir fjöldaframleiddar vörur.
15. desember 2025
Jólakveðja Fjarskiptastofu 2025
Nánar
2. desember 2025
Fjarskiptastofa lýkur samhæfðu sjálfsmati rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu
Nánar
Fjarskiptastofa hefur lokið umfangsmiklu verkefni um samhæft sjálfsmat allra rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu. Með framkvæmd þessa samhæfða sjálfsmats hafa íslensk stjórnvöld og innviðaráðherra, sem fer með málefni netöryggis, í fyrsta sinn fengið heildstæða mynd af stöðu netöryggis hjá mikilvægum innviðum landsins gagnvart kröfum laganna. Ljóst er af sjálfsmatinu að talsverður hluti rekstraraðila uppfyllir ekki viðmiði Fjarskiptastofu hvað varðar hlítni við lágmarkskröfur netöryggislaga.
28. nóvember 2025
Sýn ber að heimila Símanum að flytja opnu sjónvarpsrásina Sýn án endurgjalds
Nánar
Með ákvörðun Fjarskiptastofu (FST) þann 27. nóvember sl. komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að beiðni Símans um að fá að flytja hina opnu sjónvarpsrás Sýn á sjónvarpskerfi Símans teldist eðlileg og sanngjörn í skilningi 1. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga. Þá var það niðurstaða FST að Síminn þurfi ekki að greiða sérstaklega fyrir flutning umræddrar frístöðvar þar sem ekki væri heimild til þess í 47. gr. fjölmiðlalaga. Á umræddri stöð má m.a. finna fréttir Sýnar og fréttatengt efni, ásamt ýmsu afþreyingarefni.
24. nóvember 2025
Nýr samstarfssamningur um netöryggi tók gildi 1. október
Nánar
Þann 1. október síðastliðinn tók gildi nýr samningur um áframhaldandi samstarf á vettvangi Eyvarar NCC-IS. Samningurinn er gerður á milli innlendra aðila og Hæfnisseturs Evrópu í netöryggi (ECCC) og hefur það markmið að efla netöryggi, þekkingu og hæfni á þessu sviði hér á landi.
21. nóvember 2025
Leiðbeiningar til farsímafyrirtækja vegna flutnings símtala í númerið í 112
Nánar
Númerið 112 er sameiginlegt neyðarnúmer evrópska efnahagssvæðisins (EES). Hægt er að hringja í númerið notendum kostnaðarlausu úr bæði heimasímum og farsímum, hvar sem er innan EES-svæðisins. Á Íslandi er 112 rekið af Neyðarlínunni og veitir aðgang að öllum helstu viðbragðsaðilum, s.s. lögreglu, slökkviliði og sjúkraflutningum, allan sólarhringinn.