Fréttasafn
19. nóvember 2025
Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum - Tölfræðiskýrsla Fjarskiptastofu fyrir fyrri hluta ársins 2025 komin út
Nánar
Tvisvar á ári safnar Fjarskiptastofa upplýsingum frá skráðum fjarskiptafyrirtækjum hér á landi um ýmsar stærðir í rekstri og þjónustu á sviði fjarskipta. Upp úr þeim tölum vinnur stofnunin tölfræðiskýrslur sem sýna upplýsingar um helstu stærðir og fyrirtæki á íslenskum fjarskiptamarkaði. Markmiðið er að bæta upplýsingagjöf og auka gagnsæi á þessum markaði og eru skýrslur stofnunarinnar í samræmi við þær skýrslur sem systurstofnanir Fjarskiptastofu í nágrannalöndum okkar gefa út.
18. nóvember 2025
Beiðni Símans um framlengingu á gildistíma tíðniheimildar á 900 MHz tíðnisviðinu
Nánar
Með erindi Símans til Fjarskiptastofu (FST), dags. 14. nóvember 2025, óskaði félagið eftir því að viðbótatíðniheimild félagsins fyrir 2x4,8 MHz á 900 MHz tíðnisviðinu (900,1-904,9/945,1-949,9 MHz) yrði framlengd til 30. júní 2026, en að óbreyttu rennur gildistími tíðniheimildarinnar út um áramótin.
18. nóvember 2025
Taktu þátt í einföldun regluverks og þjónustu hins opinbera
Nánar
Innviðaráðuneytið stendur nú fyrir víðtækri könnun um einföldun regluverks og umbætur á þjónustu ráðuneytisins og stofnana þess. Markmiðið er að greina hvar óþarfar eða flóknar hindranir geta legið – hvort sem snýr að einstaklingum, fyrirtækjum, sveitarfélögum eða félagasamtökum.
10. nóvember 2025
Ísland í sérflokki með 1 gigabita háhraðainternettengingar til heimila
Nánar
Þann 10. nóvember 2025 kom út ný tölfræðiskýrsla um fjarskiptanotkun á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum sem Fjarskiptastofa og systurstofnanir hennar í þessum löndum hafa tekið saman, um notkun helstu þátta fjarskiptaþjónustu og þróun undanfarinna ára í löndunum átta. Þetta er sextánda árið í röð sem fjarskiptanotkun íbúa Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna er borin saman.
6. nóvember 2025
Fjarskiptastofa fellst á flutningsréttarbeiðni Símans að íþróttaáskriftarstöðvum Sýnar
Nánar
Með ákvörðun Fjarskiptastofu (FST), dags. 5. nóvember sl., komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að beiðni Símans um að fá að flytja íþróttaáskriftarefni Sýnar, þ.m.t. enska boltann, um sjónvarpsdreifikerfi Símans væri eðlileg og sanngjörn í skilningi flutningsréttarákvæðis 1. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga nr. 38/2011.
5. nóvember 2025
Fjarskiptastofa fagnar aukningu í tilkynningum til FST um jarðvegsframkvæmdir
Nánar
Fjarskiptastofa hvetur áfram öll veitufyrirtæki og sveitarfélög til þess að tilkynna um fyrirhugaðar jarðvegsframkvæmdir til Fjarskiptastofu og gefa fjarskiptafyrirtækjum þannig kost á að samnýta þær.
23. október 2025
Ágreiningur um flutningsrétt á Handboltapassanum
Nánar
Sýn hf. sendi Fjarskiptastofu erindi þar sem fjarskiptafélagið krafðist flutningsréttar að útsendingum íslenska handboltans sem dreift væri af Símanum hf. undir heitinu Handboltapassinn.
16. október 2025
Útfösun 2G (GSM) og 3G
Nánar
Fjarskiptastofa (FST) fylgist náið með þeirri þróun útfösunar á eldri kerfum farneta (2G og 3G), sem nú á sér stað hjá fjarskiptafélögunum þremur sem reka farnetsþjónustu á Íslandi; Nova, Símanum og Sýn.