Fréttasafn
11. ágúst 2026
Innviðaráðuneytið kallar eftir sjónarmiðum um framtíð fjarskipta og netöryggis
Nánar
Innviðaráðuneytið kallar eftir sjónarmiðum um framtíð fjarskipta og netöryggis í forsamráði um efnistök fyrirhugaðrar grænbókar um fjarskipti og netöryggi.
23. júlí 2026
Neyðarlínan kynnir varanúmerið 599 0112 ef ekki næst í 112
Nánar
Lokun eldri farsímakerfa um land allt er lokið og 4G og 5G farsímakerfi hafa alfarið tekið við. Ísland er þar með talið vera fyrsta land Evrópu til að ljúka þessari tæknibreytingu á landsvísu. Í kjölfar lokunarinnar hefur komið í ljós að sumir farsímar, einkum eldri gerðir og ákveðnir símar sem keyptir hafa verið erlendis, geta átt í erfiðleikum með að ná sambandi við neyðarnúmerið 112.
13. júlí 2026
Innanlandssamráð um vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) fyrir árið 2026
Nánar
Fjarskiptastofa kallar eftir samráði um ákvörðun um vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) fyrir árið 2026.
8. júlí 2026
Samráð um beitingu sérstakrar undanþáguheimildar vegna gjaldskrár fyrir ríkisstyrkta fjarskiptainnviði
Nánar
Fjarskiptastofu barst erindi, dags. 9. febrúar 2026, frá fjarskiptafyrirtækinu Húnaneti ehf. um að fá samþykkta tiltekna undanþágu frá almennri gjaldskrá félagsins. Í erindinu kom fram að um væri að ræða stað sem væri afskekktur með fáa notendur og að það væri mat félagsins að hefðbundnar markaðsforsendur ættu ekki við á svæðinu og því væri óskað eftir heimild til að ákvarða tengigjöld með þeim hætti að þau yrðu lægri en annars staðar í ljósleiðarakerfi Húnanets ehf.
7. júlí 2026
Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála staðfestir ákvörðun Fjarskiptastofu um að tiltekin tegund af bylgjulengdarsamböndum Mílu falli undir kvaðir
Nánar
Með úrskurði úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála (nefndin) í máli nr. 2/2026, dags. 30. júní sl., hafnaði nefndin kröfu Mílu um að liðir 3 og 4 í ákvörðunarorðum ákvörðunar Fjarskiptastofu (FST) nr. 12/2025 yrðu felldir úr gildi. Míla krafðist jafnframt þess að réttaráhrifum umræddra liða yrði frestað á meðan málið væri til meðferðar hjá nefndinni, en þeirri kröfu hafnaði úrskurðarnefndin með úrskurði 18. febrúar 2026.
2. júlí 2026
Samráð við ESA um drög að ákvörðun varðandi heildsölugjaldskrá Mílu fyrir ljósbylgjur
Nánar
Í dag sendi Fjarskiptastofa ákvörðunardrög varðandi kostnaðargreiningu Mílu hf. á heildsöluverðum fyrir ljósbylgjur til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).
26. júní 2026
Ársskýrsla Fjarskiptastofu fyrir árið 2025 er komin út
Nánar
Í skýrslunni er m.a. fjallað um helstu lykiltölur úr starfi stofnunarinnar, stöðu netöryggis á Íslandi, örar framfarir í tækni og þróun fjarskiptamarkaðarins.
23. júní 2026
Fjarskiptastofa tekur ákvörðun um endurskoðun á markaði fyrir staðaraðgang
Nánar
Fjarskiptastofa hefur tekið ákvörðun um endurskoðun á heildsölumarkaði fyrir staðaraðgang með fasttengingu (markaður 1, áður markaður 3a), í kjölfar breytinga á samkeppnisaðstæðum á tilteknum landfræðilegum mörkuðum.