Fyrirhugaðar jarðvegsframkvæmdir
Hér fyrir neðan eru tilkynningar um fyrirhugaðar jarðvegsframkvæmdir sem nýst geta fjarskiptafyrirtækjum.
Samnýting framkvæmda getur t.d. verið í boði samkvæmt lögum um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraðafjarskiptaneta nr.125/2019, samkvæmt skilmálum í samningum fjarskiptasjóðs við sveitarfélög vegna ljósleiðaravæðingar. eða samkvæmt kvöðum sem Fjarskiptastofa hefur lagt á í kjölfar markaðsgreiningar.
Átak stjórnvalda um ljósleiðaravæðingu alls landsins
Framkvæmdaáætlanir RARIK - Sjá kortasjá
Framkvæmdir í gangi 2025-2026
Lagning ljósleiðara á Borgarfirði eystra sumarið 2026
Míla í samstarfi við Múlaþing leggur ljósleiðara á Borgarfirði eystra sumarið 2026. Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu.
NánarLagning ljósleiðara á Hólum í Hjaltadal í maí 2026
Míla í samstarfi við Skagafjörð leggur ljósleiðara á Hólum í Hjaltadal í maí 2026. Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu.
NánarLagning ljósleiðara á Tálknafirði
Míla í samstarfi við sveitarfélagið hyggst leggja ljósleiðara í þéttbýli á árinu 2026. Um er að ræða framkvæmdir á Tálknafirði.
NánarFyrirhugaðar framkvæmdir við lagningu ljósleiðara í þéttbýli Fjarðabyggðar
Fyrirhugaðar eru framkvæmdir við lagningu ljósleiðara í þéttbýli Fjarðabyggðar og er Míla hf. í samstarfi við Fjarðabyggð að fara í framkvæmdir á árinu 2026. Um er að ræða framkvæmdir í Reyðarfirði og Eskifirði. Um er að ræða síðar áfanga framkvæmda sem voru lagning ljósleiðar í þéttbýli Breiðdals, Stöðvarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar og Norðfjarðar. Stefnt er að því að tengja öll heimili og fyrirtæki sem þess óska á þessum stöðum á árinu 2026.
NánarFyrirhugaðar ljósleiðaraframkvæmdir í Húnaþingi vestra í sumar
Framkvæmdir á Hvammstanga. Framkvæmdaaðili er Míla. Bæði er um að ræða skurðvinnu og ídrátt í fyrirliggjandi rör. Framkvæmdatími er sumar 2026. Framkvæmdin var auglýst á vef Mílu 2. desember 2025. Sömuleiðis hefur framkvæmdin verið auglýst á heimasíðu Húnaþings vestra. Gefinn var 60 daga frestur frá birtingu auglýsingu Mílu til að óska eftir samnýtingu.
NánarRarik undirbýr lagningu jarðstrengs 33KV. frá Vopnafirði til Þórshafnar.
Rarik undirbýr lagningu jarðstrengs 33KV. frá Vopnafirði til Þórshafnar alls 67 km. Strengurinn verður tengdur í aðveitustöðvar á báðum stöðum. Lagnaleiðin er að mestu meðfram þjóðvegi frá Vopnafirði, Sandvíkurheiði, eftir Bakkafirði og Brekknaheiði. Verktakavinna, jarðvinna og strenglagning verður boðin út í feb. 2026. og áætlaður verktími er júní til október 2026.
NánarLandsnet undirbýr lagningu 132 kV jarðstrengs 21 km leið milli Hveragerðis og Þorlákshafnar.
Landsnet undirbýr lagningu 132 kV jarðstrengs 21 km leið milli Hveragerðis og Þorlákshafnar. Jarðstrengurinn kemur til með að tengjast annars vegar upp í loftlínu Sogslínu 2, skammt frá tengivirkinu í Hveragerði og hins vegar inn í viðbyggingu við tengivirkið við Þorlákshöfn. Strengleiðin mun í stórum dráttum fylgja Suðurlandsvegi (framtíðarlegu) og Þorlákshafnarvegi. Áætlað er að jarðvinna og strenglagning verði boðin út í janúar 2026 og unnið verði að lagningu strengsins á tímabilinu júní - október 2026 og aftur í apríl - október 2027.
NánarLagning ljósleiðara í þéttbýli Snæfellsbæjar
Áformað er að framkvæmdir hefjist í Ólafsvík og Hellissandi næsta vor en nánari upplýsingar um tímasetningar veitir Míla. Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdum á einstaka svæðum skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is við fyrsta tækifæri og a.m.k. innan 30 daga frá birtingu tilkynningar þessarar svo hægt sé að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdatímans.
NánarLagning ljósleiðara í þéttbýli Suðurnesjabæjar
Um er að ræða framkvæmdir í Sandgerði og Garði. Framkvæmdaáformin eru auglýst á heimasíðu Mílu á slóðinni: https://www.mila.is/framkvaemdaaaetlanir. Framkvæmdin er styrkt með átaki stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026. Suðurnesjabær var eitt þeirra sveitarfélaga sem fékk styrk til framkvæmda. Áformað er að framkvæmdir hefjist í bæjarkjörnunum næsta vor en nánari upplýsingar um tímasetningar veitir Míla. Óski fyrirtæki eftir samstarfi í framkvæmdum á einstaka svæðum skal beina slíkri fyrirspurn til Mílu með tölvupósti á netfangið mila@mila.is við fyrsta tækifæri og a.m.k. innan 30 daga frá birtingu tilkynningar þessar svo hægt sé að tryggja að hönnun verkefnis geri ráð fyrir samnýtingu lagnaleiða innan framkvæmdartímans.
NánarLjósleiðari SVH
Sveitarfélagið Hornafjörður hefur samið við Mílu um framkvæmdir innanbæjar á Höfn. Framkvæmdin er styrkt með átaki stjórnvalda um að klára ljósleiðaravæðingu landsins fyrir árslok 2026.Sveitarfélagið Hornafjörður var eitt þeirra sveitarfélaga sem fékk styrk til framkvæmda Um er að ræða blöndu af plægingu og skurðgreftri Áætalað er að hefja framkvæmdir um miðjan mai 2025.
Nánar