Vefsjá Fjarskiptastofu
Vefsjá fyrir fjarskiptauppbyggingu á Íslandi
Vefsjáin er hugsuð til upplýsinga fyrir alla sem vilja kynna sér stöðu fjarskiptauppbyggingar á Íslandi hvort sem um er að ræða tengingar heimila og fyrirtækja við ljósleiðara eða uppbyggingu farneta á landsvísu. Meðal þess sem skoða má í vefsjánni er:
- Fjarskiptaaðgengi staðfanga (heimila og fyrirtækja) um fastanet þar sem þekja sýnir staðföng landsins í punktaformi lituð eftir hversu gott aðgengi þau hafa að fastaneti.
- Fjarskiptaaðgengi um farnet þar sem sjá má þekju sem sýnir gæði farnetssambands á staðföngum landsins.
- Útbreiðsla 4G og 5G sem sýnir sameinaða áætlaða útbreiðslu farnets allra fjarskiptafyrirtækja. Þekjan byggir á niðurstöðum reiknilíkana sem áætla sviðsstyrk farneta út frá staðsetningu og eiginleika senda, legu lands, mælinga og fleiri þátta sem haft geta áhrif á dreifingu farnets.
Gögn í vefsjánni koma að mestu frá fjarskiptafélögum og kunna að innihalda villur eða ónákvæmni.