Fréttasafn
16. apríl 2018
Niðurstaða síðara samráðs um breytingar á reglum innanhússfjarskiptalagnir
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur nú unnið úr umsögnum um þær breytingar sem stofnunin boðaði í síðara samráði um breytingar á reglum nr. 1111/2015 um innanhússfjarskiptalagnir. Að þessu sinni bárust stofnuninni athugasemdir frá fjórum aðilum, þ.e. Gagnaveitu Reykjavíkur ehf., Mílu ehf. og Tengi hf. og frá sjálfstætt starfandi rafeindavirkjameistara.
11. apríl 2018
Aðalritari Alþjóðafjarskiptasambandsins afhendir íslenskum stjórnvöldum viðurkenningu fyrir árangur í fjarskiptum og upplýsingatækni árið 2017
Nánar
Ísland varð í fyrsta sæti á heimsvísu árið 2017, á lista Alþjóðafjarskiptasambandsins (ITU) yfir árangur þjóða heimsins í útbreiðslu og notkun fjarskipta og upplýsingatækni er mældur. Aðalritari sambandins er staddur hér á landi af þessu tilefni og afhenti í dag Sigurði Inga Jóhannssyni samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra viðurkenningu fyrir þennan góða árangur Íslands.
6. apríl 2018
Hlutfall línulegs áhorfs á íslenskar sjónvarpsstöðvar breytist lítið
Nánar
PFS hefur nú í þriðja sinn fengið rannsóknarfyrirtækið Gallup til að skoða sérstaklega hlutfall hliðraðs áhorfs á íslenskar sjónvarpsstöðvar, en fyrirtækið hefur mælt sjónvarpsáhorf með rafrænum hætti frá árinu 2008. Sú skýrsla sem hér er lögð fram sýnir þróun á hlutfalli hliðraðs áhorfs gagnvart línulegu áhorfi á síðustu fimm árum, frá upphafi ársins 2012 til loka ársins 2017.
28. mars 2018
Samráð við ESA um viðbætur við viðmiðunartilboð Mílu og heildsölugjaldskrá fyrir IP sjónvarpsþjónustu á aðgangsleið 3
Nánar
Í dag sendi Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) drög að ákvörðun um skilmála Mílu ehf. (Míla) fyrir IP sjónvarpsþjónustu (IPTV) á aðgangsleið 3 í samráð til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).
26. mars 2018
Framlag til Neyðarlínunnar úr jöfnunarsjóði alþjónustu fyrir árið 2018
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur með ákvörðun sinni nr. 4/2018 samþykkt framlag til Neyðarlínunnar ohf. úr jöfnunarsjóði alþjónustu fyrir árið 2018 vegna neyðarsímsvörunar. Þetta árið kemur þó til skerðingar á úthlutuðu framlagi til Neyðarlínunnar vegna stöðu sjóðsins og fyrirhugaðra reglugerðabreytinga sem varða tilhögun fjármögnunar neyðarsímsvörunar.
26. mars 2018
Fjarskiptasjóður og sveitarfélög skrifuðu undir 24 samninga um ljósleiðarastyrki í verkefninu Ísland ljóstengt
Nánar
Þann 22. mars sl. skrifuðu fulltrúar fjarskiptasjóðs og 24 sveitarfélaga undir samninga um styrki úr sjóðnum vegna ljósleiðaravæðingar sveitarfélaga. Styrkirnir eru samkeppnisstyrkir í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt og er þetta í þriðja sinn sem slík
16. mars 2018
PFS kallar eftir samráði um drög að málsmeðferðarreglum stofnunarinnar
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun efnir til samráðs um drög að reglum um málsmeðferð stjórnsýsluerinda, bæði frá neytendum og í ágreiningmálum á milli fyrirtækja, sem mögulega verður lokið með formlegri stjórnvaldsákvörðun.
14. mars 2018
Framlengdur skilafrestur í samráði um breytingar á reglum um innanhússfjarskiptalagnir
Nánar
Ákveðið hefur verið að framlengja frest til að skila athugasemdum og umsögnum vegna fyrirhugaðra breytinga á reglum um innanhússfjarskiptalagnir. Frestur til að skila umsögnum er nú til og með 22. mars nk.