Fréttasafn
1. febrúar 2010
Íslandspósti gert skylt að breyta skilmálum um sérstaka farmtryggingu á bögglasendingum innanlands
Nánar
Þann 1. maí 2009, tóku gildi nýir skilmálar hjá Íslandspósti þar sem viðskiptamönnum fyrirtækisins er gert að kaupa sérstaka farmtryggingu vegna böggla sem sendir eru innanlands. Samkvæmt skilmálunum er nú lagt á 62 krónu tryggingargjald á hvert farmbréf með bögglum sem sendir eru innanlands. Póst- og fjarskiptastofnun sendi þann 2. júní 2009 fyrirspurn til Íslandspósts hf. vegna hinna nýju skilmála. Í svari Íslandspósts kom m.a. fram að fyrirtækið hafi tryggt innihald pakkasendinga, skv. 40. gr. laga um póstþjónustu og hafi pakkasendingar innanlands lengst af verið tryggðar allt að 22.500 kr. Sú upphæð hafi ekki breyst síðan árið 1995 á sama tíma og almennt verðlag hafi hækkað mikið.Einnig tiltekur Íslandspóstur í svari sínu að áður en breyting á farmtryggingu hafi tekið gildi þann 1. maí s.l. hafi kostnaður við trygginguna verið innifalinn í verði sendingar. Með hinu nýja farmtryggingargjaldi sé gjaldið tekið út úr sendingarkostnaði og gert að sérstöku gjaldi. Um leið hækki hámarksupphæð tryggingarinnar úr 22.500 kr. í 100.000 kr. PFS telur að af ákvæðum 40. og 41. gr. laga um póstþjónustu leiði að sendendur eigi valkvæðan rétt um það að kaupa tryggingu vegna þeirra sendinga sem þeir senda með póstrekendum. Með því að setja sérstaka skilmála um farmtryggingar þar sem kveðið er á um skyldutryggingu á pakka innanlands er vali neytenda settar ákveðnar skorður og hann í raun þvingaður til að kaupa sérstaka tryggingu á sendingu, án tillits til hugsanlegs verðmætis hennar. PFS birti ákvörðun sína um málið þann 21. janúar 2010. Í ákvörðunarorðum segir: Sérstök skyldubundin farmtrygging er ekki í samræmi við ákvæði 40. og 41. gr. laga um póstþjónustu nr. 19/2002.Með vísun til 1. mgr. 16. gr. laga um póstþjónustu nr. 19/2002, er lagt fyrir Íslandspóst að breyta umræddum skilmálum til samræmis við lögin þannig að póstsendingar njóti hlutlægrar skaðabótaverndar samkvæmt 40. gr. laganna, án töku sérstaks farmtryggingargjalds. Ákvörðun PFS nr. 1/2010 um breytingu á skilmálum Íslandspósts um sérstaka farmtryggingu á bögglasendingum innanlands. (PDF) Lög um póstþjónustu nr. 19/2002
29. janúar 2010
PFS kallar eftir samráði um reglur um verðsamanburð á fjarskiptaþjónustu
Nánar
Líkt og áður hefur komið fram á vefsíðu Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) þá hefur verið unnið að gerð reiknivélar fyrir neytendur þar sem mögulegt verður að bera saman verð á síma- og netþjónustu. Er tilgangur reiknivélarinnar að auðvelda neytendum að leggja mat á hvaða síma- og/eða netþjónusta hentar þeim best. Í lögum um fjarskipti nr. 81/2003 (1. mgr. 41. gr.) er mælt fyrir um heimild til handa PFS að setja reglur um gæði fjarskiptaþjónustu og framsetningu upplýsinga sem birtar eru svo að notendur hafi aðgang að ítarlegum, samanburðarhæfum og auðskiljanlegum upplýsingum. Á grundvelli þessa ákvæðis hyggst PFS nú setja slíkar reglur.Er ætlunin að reglurnar verði til hagsbóta fyrir neytendur á fjarskiptamarkaði og stuðli að bættri neytendavernd og aukinni verðvitund almennings. Markmið reglnanna er m.a að skapa grundvöll fyrir því að notendur geti sjálfir, með gagnvirkum hætti, gert marktækan samanburð á verðum fyrir fjarskiptaþjónustu með tilliti til eigin notkunar. Hér með er markaðsaðilum og almenningi gefinn kostur á því að kynna sér drög að reglunum og gera athugasemdir við þær. Frestur til að skila umsögnum og athugasemdum við drögin er til 5. febrúar nk. og skulu þær sendar á netfangið pfs@pfs.is. Reglur um verðsamanburð á fjarskiptaþjónustu - drög (PDF)
29. janúar 2010
Úrskurður úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála í máli Mílu gegn PFS
Nánar
Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála hefur með úrskurði sínum nr. 4/2009 þann 15. janúar sl. úrskurðað í máli Mílu ehf. gegn Póst- og fjarskiptastofnun (PFS). Míla kærði ákvörðun PFS nr. 13/2009, frá 17. júlí 2009, um kostnaðargreiningu fyrir opinn aðgang að koparheimtaugum (markaður 11 í eldri tilmælum ESA). Í hinni kærðu ákvörðun var niðurstaða PFS á þá leið að stofnunin samþykkti uppfærða kostnaðargreiningu Mílu frá júní 2009 með tilteknum breytingum sem mælt er fyrir um í ákvörðuninni. PFS ákvarðaði félaginu 6,18% hækkun á gjaldskrá.Var það verulega minni hækkun en félagið hafði farið fram á. Í kæru sinni fór Míla fram á að úrskurðarnefndin hafnaði forsendum PFS og heimilaði 42% hækkun á gjaldskrá fyrir heimtaugaleigu. Úrskurðarnefnd staðfesti með úrskurði sínum forsendur PFS í hinni kærðu ákvörðun, aðrar en þær sem varða að taka beri tillit til fjárbindingar í birgðum. PFS hefur nú samþykkt uppfærða kostnaðargreiningu Mílu með þeirri breytingu sem mælt er fyrir um í ákvörðun úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. Verð munu hækka um 0,45% frá núverandi verðum eða sem nemur 6,63% í stað 6,18% eins og PFS hafði áður ákvarðað í júlí 2009.Verð fyrir fullan aðgang að heimtaug skal vera 1.223 kr. á mánuði án vsk. Þar af skal grunnverð (neðra tíðnisvið) vera 920 kr. og verð fyrir skiptan aðgang (efra tíðnisvið) vera 303 kr.Hin nýja verðskrá Mílu skal ekki taka gildi fyrr en í fyrsta lagi 1. mars 2010, enda tilkynni félagið leigutökum um verðskrárbreytinguna með a.m.k. 30 daga fyrirvara. Úrskurður úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála nr. 4/2009 (PDF)
29. janúar 2010
Tíðniheimild Símans vegna NMT 450 kerfisins framlengd
Nánar
Póst – og fjarskiptastofnun hefur framlengt tíðniheimild Símans til reksturs langdrægs NMT kerfis á 450 MHz tíðnisviðinu sem þjóni landinu öllu og miðunum. Þrátt fyrir mikla uppbyggingu langdrægrar farsímaþjónustu (GSM/UMTS/3G) nær hún enn ekki fullkomlega til alls landsins og óvissa er um virkni hennar á ákveðnum svæðum á hálendinu og á miðunum. Í ljósi þessa er það mat PFS að með hliðsjón af almannahagsmunum og öryggissjónarmiðum sé rétt að framlengja tíðniheimild Símans vegna NMT kerfisins til 1. september 2010. Eftir því sem langdræga farsímaþjónustan nær til fleiri svæða verður slökkt á NMT sendum á þeim svæðum. Hin framlengda NMT 450 tíðniheimild Símans er háð því skilyrði að fyrirtækið birti fréttatilkynningu í byrjun hvers mánaðar með lista yfir þá NMT senda sem slökkt verður á í þeim mánuði. Sjá lista yfir NMT senda símans og áætlun um lokanir þeirra (PDF) Á næstu dögum mun PFS auglýsa NMT 450 MHz tíðnisviðið laust til umsóknar með möguleika á að hefja tilraunasendingar á vormánuðum 2010.
22. janúar 2010
Lausar stöður hjá PFS
Nánar
Þrjár stöður sérfræðinga eru lausar til umsóknar hjá Póst- og fjarskiptastofnun. Um er að ræða stöður í lögfræðideild, greiningardeild og tæknideild. Sækja skal um stöðurnar rafrænt hér á vefnum. Sjá nánari lýsingu og hvernig sækja skal um.
18. desember 2009
Reiknivél PFS fyrir neytendur á vefinn snemma á næsta ári.
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur undanfarna mánuði unnið að gerð reiknivélar fyrir neytendur þar sem þeir geta borið saman verð á síma- og netþjónustu. Tilgangur reiknivélarinnar er að auðvelda neytendum að leggja mat á hvaða síma- og netþjónusta hentar þeim best. Fyrirmynd slíkrar reiknivélar er sótt til Norðurlandanna en systurstofnanir PFS þar hafa haldið úti slíkum reiknivélum fyrir neytendur. Mikil notkun þeirra hefur sýnt fram á þörfina fyrir að auka gagnsæi í upplýsingum um verð á mismunandi tegundum fjarskiptaþjónustu og aðstoða þar með neytendur við val á þeirri þjónustu sem þeim hentar. Við undirbúning reiknivélarinnar hefur verið lögð áhersla á samráð og upplýsingar til markaðsaðila, bæði fjarskiptafyrirtækja og fulltrúa neytenda, svo sem Neytendastofu, Talsmanns neytenda og Neytendasamtakanna. Í júlí sl. voru fjarskiptafyrirtækin upplýst bréflega um að stefnt væri að því að koma reiknivélinni á Netið í lok ársins. Þar kom m.a. fram að ekki væri ráðgert að taka tillit til pakkatilboða, vinaafslátta né samþættingu heimasíma, internets og farsímanotkunar. Þann 10. nóvember sl. fengu fjarskiptafyrirtækin send gögn um reiknivélina til samráðs. Þar voru kynntar forsendur hennar og hvernig hún yrði upp byggð. Fengu fyrirtækin frest til 27. nóvember til að senda inn athugasemdir. Í lok samráðstímans barst talsvert af athugasemdum. Vega þar einna þyngst ábendingar varðandi áhrif mismunandi markaðshlutdeildar fjarskiptafyrirtækja og hringimynstur notenda á virkni reiknivélarinnar. Þær athugasemdir sem bárust eru nú til skoðunar hjá stofnuninni. Þegar þeirri vinnu ásamt tæknivinnu við gerð vélarinnar verður lokið, væntanlega snemma á næsta ári, verður reiknivélin sett í loftið. Birting reiknivélarinnar og aðgengi verður auglýst með skýrum hætti af hálfu Póst- og fjarskiptastofnunar þegar þar að kemur.
17. desember 2009
Nýjar reglur um efni viðmiðunartilboðs fyrir opinn aðgang að heimtaugum
Nánar
Póst- og fjarskiptastofnun hefur sett nýjar reglur um efni viðmiðunartilboðs fyrir opinn aðgang að heimtaugum. Reglurnar tóku gildi við birtingu í Stjórnartíðindum þann 14. desember sl.Markmiðið með reglunum er að stuðla að auknu gagnsæi með því að kveða skýrt á um þau atriði sem ávallt skal fjallað um í viðmiðunartilboði um aðgang að heimtaug og tengdri aðstöðu Reglur um efni viðmiðunartilboðs fyrir opinn aðgang að heimtaugum, nr. 993/2009, á vef Stjórnartíðinda.
15. desember 2009
Tilmæli PFS til fjarskiptafyrirtækja um viðskiptaskilmála gagnvart neytendum
Nánar
Nokkurs misræmis hefur gætt í aðferðum fjarskiptafyrirtækja við birtingu og innihald viðskiptaskilmála. Einnig hefur gætt misræmis í því hvernig fyrirtækin tilkynna viðskiptavinum sínum breytingar á skilmálum. Vegna þessa telur Póst- og fjarskiptastofnun ástæðu til að beina sérstökum tilmælum til fjarskiptafyrirtækjanna um birtingu og lágmarks innihald viðskiptaskilmála þeirra fyrir fjarskiptaþjónustu. Er þetta í samræmi við eitt af lögbundnum verkefnum PFS; að stuðla að birtingu skýrra upplýsinga fyrir neytendur og krefjast gagnsæi gjaldskráa og skilmála fyrir notkun almennrar fjarskiptaþjónustu.(Sjá d-lið 4. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 69/2003, um Póst- og fjarskiptastofnun). Tilgangur þessara tilmæla er að vekja athygli þjónustuveitenda og neytenda á að í fjarskiptalögum er neytendum tryggt ákveðið lágmarks réttaröryggi þegar kemur að samningsbundnum tengslum þeirra við þau fyrirtæki sem þeir kaupa fjarskiptaþjónustu hjá. Réttur allra neytenda er jafn vel tryggður í lögunum hvað þetta varðar, hvort sem samningur þeirra við þjónustuveitendur er skriflegur eða ekki. Markmið tilmælanna er að tryggja gagnsæi, að því er varðar verð, gjaldskrár, skilmála og skilyrði og efla þannig neytendavernd og möguleika neytenda á því að meta hvað felst í þeirri þjónustu sem fyrirtækin bjóða upp á. Neytendur geta þannig að fullu notið þeirra hagsbóta sem samkeppni veitir. Tilmælin byggja á bindandi ákvæðum fjarskiptalaga og almennri túlkun PFS á þeim. Lítur stofnunin því svo á að þjónustuveitendum fjarskiptaþjónustu beri að virða þau í hvívetna í samskiptum sínum við neytendur á fjarskiptamarkaði. Helstu atriði tilmælanna eru eftirfarandi: 1. Upptalning á helstu þáttum sem viðskiptaskilmálar fyrir fjarskiptaþjónustu skulu að lágmarki innihalda2. Þjónustuveitendum ber að birta gjaldskrá og skilmála fyrir alla sína þjónustu á skýran og aðgengilegan hátt fyrir neytendur3. Gjaldskrá er hluti af skilmálum fjarskiptaþjónustu og því gilda sömu reglur um breytingar á gjaldskrá og um breytingar á skilmálum.• Þjónustuveitendum ber að tilkynna viðskiptavinum á sannanlegan hátt um breytingar á skilmálum fyrir þjónustu sína með a.m.k. mánaðar fyrirvara og um leið upplýsa þá um rétt sinn til að segja upp samningi (þjónustunni) að skaðlausu vilji þeir ekki samþykkja hina nýju skilmála.4. Áréttaður er skilyrðislaus réttur rétthafa símanúmera/tengingar til númera- og þjónustuflutnings5. Þjónustuveitendur verða að upplýsa rétthafa símanúmera um það hvaða breytingar það hefur í för með sér að gera annan aðila að greiðanda þjónustunnar6. Áréttuð er skylda fjarskiptafyrirtækja til að verða við ósk neytenda um að læsa fyrir símtöl/SMS í símanúmer sem bera yfirgjald. Sjá tilmæli PFS í heild (PDF) Neytendastofa og Talsmaður neytenda hafa gefið álit sitt á þessum tilmælum og eru álit þeirra aðgengileg hér fyrir neðan. Álit Neytendastofu (PDF) Álit Talsmanns neytenda (PDF)